Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. júlí 2021 20:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Eru að kaupa einn besta miðvörð Evrópu"
Mynd: Getty Images
Flest bendir til þess að Raphael Varane sé að ganga í raðir Manchester United frá Real Madrid. Miðvörðurinn er sagður skrifa undir fjögurra ára samning og talinn kosta á bilinu 35-41 milljón punda.

Terry Gibson er sérfræðingur um spænskan fótbolta og tjáði hann sig um Varane á Sky Sports News í dag.

„Ef Man Utd nær að koma Varane yfir línuna er félagið að kaupa einn besta miðvörð í Evrópu. Hann hefur verið frábær hjá Real frá fyrsta degi, hann hefur alla þá eiginleika sem þú þarft. Það hefur verið aðeins litið framhjá honum út af Sergio Ramos," sagði Gibson.

„En þegar kemur að gæðum, þá held ég að það séu ekki margir betri en Varane," bætti Gibson við.
Athugasemdir
banner
banner