Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. júlí 2022 14:00
Elvar Geir Magnússon
Kjær spilar sinn fyrsta leik á þessu ári
Mynd: EPA
Danski varnarmaðurinn Simon Kjær hjá AC Milan mun spila sinn fyrsta leik á þessu ári þegar Milan leikur æfingaleik við Wolfsberg frá Austurríki á morgun.

Tuttosport segir að Kjær komi væntanlega við sögu í leiknum en hann hefur ekkert spilað síðan hann meiddist illa á hné í desember.

Kjær kom til Milan í janúar 2020 og varð strax lykilmaður í vörn liðsins. Hann og Fikayo Tomori mynduðu öflugt miðvarðapar.

Þrátt fyrir að Kjær hafi misst af stórum hluta síðasta tímabils náði AC Milan að verða Ítalíumeistari. Franski varnarmaðurinn Pierre Kalulu greip tækifærið í fjarveru Kjær og spilaði frábærlega.
Athugasemdir
banner
banner