Fotbolti.net
26.08.20 - 20:47
Anton Freyr Jónsson
Skrifar frá: Samsungvellinum

Arnar Grétars: Báðir aðilar sáttir með samstarfið

Auglýsing
Arnar Grétarsson, þjálfari KA

Arnar Grétarsson, þjálfari KA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan og KA mættust í kvöld á Samsungvellinum í Garðabæ í Pepsí Max-deild karla og endaði leikurinn 1-1. Emil Atlason kom Stjörnunni yfir í lok fyrri hálfleiks en síðan skoraði Guðmundur Steinn af vítapunktinum á 90 mínútu.

„Við getum sagt að ég sé ánægður, skorum í blálokin en svekktur í raun og veru eftir að vera 11 á móti 10, fáum á okkur mark í lálokin í fyrri hálfleik. Mér fannst vera sofandiháttur og gerum hlutin svolítið erfiða fyrir okkur. Stjarnan var mun meira með boltann í fyrri hálfleik en ég man ekki eftir að þeir hafi skapað eitt eða neitt færi og fannst við líklegri." voru fyrstu viðbrögð Arnars Grétarssonar þjálfara KA
„Stjarnan er með gott lið, falla til baka og eru líka alltaf hættulegir líka fram á við, þeir eru með hraða menn fram á við þannig það er alltaf ákveðin hætta. Við vorum með boltann lang tímis saman, eigum skot í stöngina og svona var ekki að ganga þessvegna var mikilvægt að fá þetta mark. Við förum glaðir héðan þótt við hefðum vilja meira."

KA menn fóru 0-1 undir í hálfleik en koma gríðarlega sterkir inn í síðari hálfleikinn. Hvað sagði Arnar við strákana í hálfleik?

„Ég var drullu svekktur með hvernig markið kom. Við ætluðum að fara hærra á þá til að byrja með. Mér fannst við ekki byrja leikinn nógu vel þrátt fyrir það að Stjarnan var ekki að skapa sér neitt þá hefði ég vilja sjá okkur stíga upp og þora að halda boltanum."

„Við komum okkur meira og meira inn í leikinn og vorum í raun og veru líklegri en Stjarnan þrátt fyrir að þeir voru mun meira með boltann, það er alltaf jákvætt."

Arnar Grétarsson var spurður út í vítaspyrnudóminn undir lokinn sem KA menn fengu.

„Alltaf þegar menn fara í bakið á mönnum þá eru menn alltaf að kalla hættuna heim. Mér fannst stuttu áður þegar boltinn kemur á ívar sem nær skalla og Kristófer keyrir inn í hann. Mér fannst það vera púra víti."

„Auðvitað skil ég Stjörnumenn að vera drullu svekkta vegna þess að þetta er á 90 mínútu en ef dómarinn dæmir þá er það bara víti, hvort sem það er víti eða ekki."

Arnar Grétarsson er samningsbundinn KA út tímabilið. Arnar var spurður hvort það væru viðræður í gangi um nýjan samning.

„Við vorum búnir að tala um það í byrjun að við myndum bara klára tímabilið svo ætluðum við að setjast niður og ræða hlutina. Ég held að báðir aðilar séu sáttir með samstarfið þannig við þurfum bara aðeins að skoða hlutina."

Viðtalið í heild má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.