Loris Karius er á förum frá Liverpool til Union Berlín í Þýskalandi á láni út leiktíðina.
Hinn 27 ára gamli Karius rifti lánssamningi sínum við Besiktas í Tyrklandi í maí síðastliðnum þegar tveggja ára samningur hans þar var við það að enda.
Karius á enga framtíð hjá Liverpool og mun hann spila í þýsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Karius gekk í raðir Liverpool frá Mainz árið 2016 og spilaði síðast fyrir Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2018. Þar átti hann agalegan leik og mun hann væntalega ekki spila fleiri leiki fyrir Liverpool.
Union Berlín hafnaði í 11. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir