Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. nóvember 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Vill að öll lið leggi treyju númer 10 til hliðar
Maradona spilaði í treyju númer 10 á ferli sínum.
Maradona spilaði í treyju númer 10 á ferli sínum.
Mynd: Getty Images
Andre Villas-Boas, þjálfari Marseille, hefur skorað á FIFA að setja reglu um að öll lið leggi treyju númer 10 á hilluna til heiðurs Diego Maradona.

Maradona lét lífið í gær sextugur að aldri en hann spilaði í treyju númer 10 á mögnuðum ferli sínum.

„Þetta eru erfiðar fréttir með Maradona og ég myndi vilja sjá FIFA leggja treyju númer 10 til hliðar hjá öllum liðum í öllum keppnum," sagði VIllas-Boas.

„Það væri mesta virðing sem við gætum sýnt honum. Þetta er ótrúlegur missir fyrir heimsfótboltann."

Maradona lést eftir að hafa fengið hjartaáfall í svefni en þriggja daga þjóðarsorg er í Argentínu eftir andlát hans.
Athugasemdir
banner
banner
banner