banner
   lau 27. febrúar 2021 23:30
Aksentije Milisic
Shelvey ekki hrifinn af Leeds - „Tilgangslaus hlaup"
Mynd: Getty Images
Jonjo Shelvey, leikmaður Newcastle United, ákvað að tjá sig aðeins um Leeds en hann er ekki aðdáandi Marcelo Bielsa, stjóra Leeds.

Margir áhugamenn um enska boltann hafa haft mjög gaman af leikjum Leeds í vetur en liðið skorar mikið á mörkum en fær á sama tíma helling á sig.

Shelvey var í viðtali í hlaðvarpsþætti hjá Studs Up podcast og þar tjáði hann sig um Leeds og spilamennsku þeirra.

„Fyrir mánuði síðan spiluðum við gegn Leeds hér fyrir norðan. Þessi Rodrigo strákur var á miðjunni í þeim leik," sagði Jonjo.

„Hann átti að spila á miðri miðju en hann var út um allan völl. Ég sagði við hann: „Almáttugur, geturu staðið kyrr í nokkrar sekúndur. Þú ert að hlaupa út um allt eins og brjálæðingur."

„Sum hlaup hans voru gjörsamlega tilgangslaus. Hann svaraði mér að hann þyrfti að gera þetta, stjórinn sagði það."

Hinn 29 ára gamli Shelvey sagði að það væri ekki séns að hann gæti spilað fyrir Leeds. Líklega er Marcelo Bielsa sammála því.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner