Helgi Sig: Hann er kominn í Fylki til að ná árangri
Auglýsing

Helgi Sig var ánægður með sigur sinna manna í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sig var ánægður með sigur sinna manna í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<em>„Þetta var alveg frábært hjá okkur frá a-ö,“ </em>sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis eftir 0-3 sigur sinna manna í Vestmannaeyjum.<br />
ÍBV fékk sénsa í leiknum sem nýttust ekki en allt virtist ganga upp þegar Fylkir skaut á markið. „Ég er sammála því en það er oft þannig. Við erum að spila fyrsta leik í Íslandsmóti, mikil spenna og mikið undir, koma hérna á gras og í töluvert rok, og við lögðum upp úr því að nýta hornspyrnur og aukaspyrnur vel. Það skilaði okkur góðum mörkum í lok fyrri hálfleiks.“
Emil Ásmundsson þurfti að fara meiddur af velli og inn á kom Sam Hewson sem átti frábæran leik. „Hann var geggjaður. Það verður ekkert af honum tekið. En hann var ekki sá eini sem var geggjaður í dag. Þetta snýst um liðsheildina. Hann vill þetta mikið. Hann er kominn í Fylki til að ná árangri.“
Viðtalið í heild má sjá hér í spilaranum en þar er einnig rætt um Castillion.