Jose Mourinho, stjóri Tottenham, reiknar með því að Harry Kane, Son Heung-min, Steven Bergwijn og Moussa Sissoko verði allir klárir í slaginn þegar enska úrvalsdeildin byrjar aftur í júní.
Allir leikmennirnir meiddust eftir áramót og reiknað var með að þeir yrðu lítið með það sem eftir lifði tímabils.
Eftir að fótboltinn fór í pásu vegna kórónaveirunnar í mars hafa leikmennirnir fengið tima til að jafna sig.

„Harry Kane, Son, [Steven] Bergwijn, [Moussa] Sissoko eru allir í lagi," sagði Mourinho.
„Eftir nokkrar vikur af eðlilegum æfingum, þegar yfirvöld leyfa okkur að æfa eðlilega, þá verða strákarnir klárir í að spila. Auðvitað verða þeir ekki upp á sitt besta en ég held að enginn geti það í augnablikinu."
Athugasemdir