Jón Sveins: Við erum tilbúnir í allskonar aðstæður
Auglýsing

Jón Þórir og hans menn halda áfram að vinna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þórir Sveinsson var skiljanlega sáttur með stigin þrjú eftir 0-1 útisigur á móti Gróttu í dag.
„Hrikalega ánægður og sáttur það var markmið dagsins að ná í 3 stig það var virkilega erfitt á móti frábæru Gróttuliði." sagði Jón
Leikurinn var mjög jafn, var þetta erfiðasti leikur Fram í deildinni í sumar.
„Kannski að því leiti að við skoruðum bara eitt mark og maður þurfti að vera á nálum fram á síðustu stundu. Við höfum spilað marga erfiða leiki. Grótta er með hörkulið og miklu betra heldur en taflan segir til um."

„Nei það kom okkur ekki á óvart, þeir gerðu það á móti HK og við vorum vissir um að þeir myndu gera það í dag, þeir eru að berjast fyrir lífi sínu að komast frá þessum botnhópi. Þeir eru með unga stráka í fínu formi og vel þjálfaðir. " sagði Jón þegar hann var spurður út í það hvort pressan hjá Gróttu hafi komið á óvart.
Besti leikmaður fyrstu umferða deildarinnar var á bekknum.
„Hann er að koma til, hann er ekki búinn að æfa mikið síðustu daga en hann virðist vera að verða nokkuð 100% klár, við reiknum með að hann verði með á æfingu á morgun og tilbúinn í næsta leik."
Hvað er að skila því að Framliðið er búið að vinna alla leikina í sumar
„Það er auðvitað vinna og barátta, við erum með mjög góða einstaklinga og flott fótboltalið. Við erum tilbúnir í allskonar aðstæður eins og hefur verið í ár hvort sem það er rok eða rigning eða allskonar vellir."
Næst spila Framarar við Grindavík
„Grindavík eru með mjög gott lið og spila frábæran fótbolta og við þurfum að vera tilbúnir þar. Þeir kannski óheppnir að gera jafntefli í síðasta leik eftir erfiðan bikarleik úti á móti Þór, ferðalag og stutt á milli en á móti hafa þeir fengið tveim dögum lengur en við til þess að hvíla sig fyrir næsta leik."
Nánar er rætt við Jón Þóri í spilaranum hér að ofan.