Fotbolti.net
27.07.20 - 22:45
Egill Sigfússon

Eyjólfur Héðins: Við vorum ekki góðir í þessum leik

Auglýsing
Eyjólfur Héðinsson, leikmaður Stjörnunnar

Eyjólfur Héðinsson, leikmaður Stjörnunnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan fékk Víkinga í heimsókn á Samsung völlinn í kvöld í 9. umferð Pepsí Max-deildar karla og skildu liðin jöfn, 1-1.

<i>„Við erum svekktir með eigin frammistöðu, við vorum ekki góðir í þessum leik. Við byrjuðum leikinn mjög vel og komumst í 1-0 en svo duttum við alveg á hælana eftir það og það var bara tímaspurning hvenær þeir myndu jafna. Við vorum mjög óánægður með okkur sjálfa í hálfleik og við svöruðum því ágætlega, áttum ágætis seinni hálfleik. Jafntefli var bara sanngjarnt."</i>

Sagði Eyjólfur Héðinsson, leikmaður Stjörnunnar sem var óánægður með spilamennsku þeirra í fyrri hálfleik í kvöld.
Stjarnan fór í sóttkví og missti af þremur umferðum og segir Eyjófur að þeir geti lítið pælt í töflunni á meðan þeir eiga alltaf 2-3 leiki inni á hin liðin.

„Jú við getum eiginlega ekkert pælt í töflunni út af þessum leikjafjölda hjá okkur, við erum því ekkert að gera það. Þetta jafnast út í september eða október og þá kemur þetta bara í ljós, en eins og staðan er núna er mjög erfitt fyrir okkur að lesa í þetta."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.