Fotbolti.net
27.10.20 - 22:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Zidane: Þetta verður erfitt ár

Zidane: Þetta verður erfitt ár
Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Við héldum ekki að það yrði einhver dramatík. Liðið gerði vel að koma til baka,"</I> sagði Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, eftir 2-2 jafntefli gegn Borussia Mönchengladbach á útivelli í Meistaradeildinni.
Marcus Thuram kom Gladbach í 2-0 en mörk frá Karim Benzema og Casemiro undir lokin björguðu stigi fyrir Real Madrid.

„Þetta er mikilvægt stig. Við vitum það að með því að spila eins og við gerðum [undir lokin] munum við gera það sem þarf og leikmenn börðust allt til enda. Þetta verður erfitt ár fyrir okkur alla en í dag verðum við að vera stoltir af afrekinu," bætti Zidane við.

Real Madrid er með eitt stig eftir tvo leiki. Liðið tapaði gegn Shakhtar í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.