Danski varnarmaðurinn Simon Kjær framlengdi í dag samning sinn við ítalska félagið AC Milan til ársins 2024.
KJær er 32 ára gamall og kom fyrst til Milan á láni frá Sevilla í janúar á síðasta ári.
Milan keypti hann eftir tímabilið fyrir 3,5 milljónir evra og gerði hann samning til 2022.
Ítalska félagið hefur verið ánægt með hans störf. Hann hefur misst úr nokkrum leikjum á þessu tímabili vegna meiðsla en er annars fastamaður í liðinu.
Hann framlengdi í dag samning sinn við Milan til ársins 2024.
Kjær hefur spilað 66 leiki fyrir Milan, gert eitt mark og lagt upp tvö.
Athugasemdir