Fotbolti.net
27.10.26 - 11:03
Kári Snorrason

Bauðst til að stíga til hliðar um mitt sumar

Bauðst til að stíga til hliðar á miðju tímabili.

Bauðst til að stíga til hliðar á miðju tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Með sigri á FH í lokaumferð Bestu deildarinnar tryggðu Þórsarar sér áframhaldandi sæti í deildinni á næstu leiktíð.

Útlitið var ekki bjart framan af móti fyrir Þórsara en þeir náðu að snúa lélegu gengi við um mitt mót. Liðið endaði með 30 stig en 22 þeirra stiga komu í síðustu 13 umferðunum.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, var til tals í Innkastinu á laugardaginn var og ræddi um viðsnúninginn á tímabilinu.
„Við töpum 6-1 fyrir Fram og vorum gjörsamlega ömurlegir í seinni hálfleik. Við litum út eins og lélegasta lið í heiminum. Ég lét leikmenn alveg vita af því og ég tók það alveg inn á mig. Við fáum svo Aron Einar heim og eigum heimaleik gegn Víkingi. Þrátt fyrir að tapa síðasta leik 6-1 þá vaknaði ég um morguninn og hélt að við værum að fara vinna Víking og við gerðum það,“ sagði Siggi og hélt áfram.

„Þá fann ég það að ég væri með lið, teymi og stjórn sem hefur alltaf trú og að við værum að fara bjarga okkur. Þessir síðustu 13 leikir voru yfir heildina litið allt annað Þórslið. Við fáum þessa fjóra gaura inn (Þorra Ingólfsson, Gyrði Hrafn Guðbrandsson, Lucas Vasquez og Victor Bertomeu) og það var ákveðinn vendipunktur.

Það er oft þannig á tímabilinu að við vorum ógeðslega ánægðir með okkur í teyminu; áttum frábæra æfingaviku, fundi og góðan undirbúning fjórar vikur í röð en uppskeran var núll stig. Það var mjög erfitt, mjög þungt. Það er líka mjög þungt þegar umræðan er sú að við séum mjög lélegir. Að vinna allt þetta til baka, stjórnin stóð alltaf við bakið á mér. Ég bauð þeim að stíga til hliðar á miðju tímabili og þeir sögðu þvert nei. Ég gæti ekki verið ánægðari,“
sagði Siggi að lokum.
Þórsarar héldu sér uppi með sigri á FH í lokaumferðinni.

Þórsarar héldu sér uppi með sigri á FH í lokaumferðinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

,,Þrátt fyrir að tapa síðasta leik 6-1 þá vaknaði ég um morguninn og hélt að við værum að fara vinna Víking.

,,Þrátt fyrir að tapa síðasta leik 6-1 þá vaknaði ég um morguninn og hélt að við værum að fara vinna Víking.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.