Fotbolti.net
26.10.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Vann Ballon d'Or í þriðja sinn - Barcelona sópaði að sér verðlaunum

Alexia Putellas

Alexia Putellas

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Spænski miðjumaðurinn Alexia Putellas vann Ballon d'Or verðlaunin í þriðja sinn. Hún jafnaði met löndu sinnar Aitana Bonmatí sem hefur einnig unnið verðlaunin þrisvar.

Putellas vann fernuna með Barcelona á síðustu leiktíð en hún yfirgaf félagið og samdi við London City Lionesses eftir 14 ára dvöl hjá Barcelona. Hún kom að 41 marki í 53 leikjum fyrir Barcelona og spænska landsliðið.
Barcelona sópaði að sér verðlaunum í kvöld en það er lið ársins. Cata Coll, markvörður spænska liðsins er markvörður ársins. Þá var Pere Romeu þjálfari ársins en hann er þjálfari Barcelona.

Hin tvítuga Vicky Lopez, leikmaður spænska landsliðsins og Barcelona, var þá ungi leikmaður ársins annað árið í röð.
Vicky Lopez.

Vicky Lopez.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.