Fotbolti.net
27.10.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Saka verðlaunaður á Ballon d'Or hátíðinni

Saka verðlaunaður á Ballon d'Or hátíðinni
Canon

Mynd: EPA

Bukayo Saka, framherji Arsenal og enska landsliðsins, hlaut Socrates verðlaunin á Ballon d'Or verðlaunahátiðinni sem veitt eru fyrir mannúðarstarf.
Saka er heiðraður fyrir samstarf sitt við BigShoe til að fjármagna 120 lífbreytandi læknisaðgerðir fyrir börn í Kano í Nígeríu, til að heiðra arfleifð fjölskyldu sinnar.

Nígeríski söngvarinn og lagahöfundurinn Burna Boy afhenti Saka verðlaunin á sviði.

Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2022 þegar Sadio Mane hlaut verðlaunin. Þá hafa Vinicius Junior, Jennifer Hermoso og Luis Enrique einnig hlotið verðlaunin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.