27.10.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Slagsmál í baráttunni um Istanbúl - „Toga í hár eins og konur"

Archie Brown

Mynd: EPA

Archie Brown

Mynd: EPA
Oftar en ekki eru mikil læti í leiikjum Istanbúl liðanna Galatasaray og Fenerbahce.
Það ljóst í hvað stefndi þegar Romelu Lukaku, leikmaður Fenerbahce var ósáttur við Abdulkerim Bardakci, leikmann Galatasaray, strax í upphafi leiks og þeir rifust áður en fleiri leikmenn skárust í leikinn.

Það sauð síðan endanlega upp úr í leikslok þegar Kerem Akturkoglu, leikmaður Galatasaray og Matteo Guendouzi, leikmaður Fenerbahce, lenti saman.
Aðrir leikmenn, þjálfarateymi og gæsla skárust í leikinn og Archie Brown tók Bardakci hálstaki. Þeir fengu báðir að líta rauða spjaldið. Brown tjáði sig um atvikið eftir leikinn.
„Ég sá fyrirliðan þeirra toga í hárið á Guendouzi svo ég varði hann. Þetta gera þeir í Gala, þeir klóra fólk og toga í hár eins og konur," sagði Brown og sýndi klórför á hálsinum.
Leiknum lauk með 2-1 sigri Galatasaray. Victor Osimhen skoraði bæði mörk Galatasaray og Irfan Kahveci skoraði mark Fenerbahce. Galatasaray er á toppnum með 22 stig eftir níu umferðir en Fenerbahce er í 5. sæti með 16 stig.

Galatasaray-Fenerbahçe derbisinin sonunda ç?kan kavgan?n en net görüntüsü tribünden kaydedildi. https://t.co/SoHj5Xnlpv
— gündemio (@gundemio) October 26, 2026