Fotbolti.net
27.10.26 - 09:05
Elvar Geir Magnússon

Arsenal hefur áhuga á Varela - Liverpool meðal félaga sem vilja Vuskovic

Gustavo Varela er með sjö mörk í sjö leikjum í ítölsku A-deildinni.

Gustavo Varela er með sjö mörk í sjö leikjum í ítölsku A-deildinni.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Góðan og gleðilegan daginn, það er kominn slúðurtími. Portúgalskur sóknarmaður er á radarnum hjá Arsenal, Crystal Palace vill halda Sarr og Luka Vuskovic á marga aðdáendur.
Arsenal og Napoli hafa áhuga á portúgalska framherjanum Gustavo Varela (21) hjá Monza sem hefur verið að spila virkilega vel og er með 7 mörk í 7 leikjum í ítölsku A-deildinni. Fyrrum félag hans, Benfica, hefur þá áhuga á að fá hann aftur. (Gazzetta dello Sport)

Crystal Palace er tregt til að selja senegalska vængmanninn Ismaila Sarr (28) í janúar eftir að hafa átt í viðræðum við hann um nýjan samning. Sarr vildi ganga til liðs við Liverpool í sumar. (Football Insider)

Króatíski varnarmaðurinn Luka Vuskovic (19) hjá Brighton heldur áfram að vekja mikinn áhuga frá stórliðum í Evrópu. Liverpool, Real Madrid og Barcelona hafa blandað sér í baráttuna um miðvörðinn. (Teamtalk)

Liverpool hefur miklar mætur á þýska miðjumanninum Felix Nmecha (26) hjá Borussia Dortmund, en hann er þó ekki talinn vera forgangsmarkmið í leikmannakaupum enska stórliðsins. (Florian Plettenberg)

Fyrrverandi stjóri Newcastle, Eddie Howe, gæti krafist þess að fá allt teymið sitt með sér ef Manchester United hefur samband við hann varðandi stjórastöðuna. (Express)

Manchester United þyrfti að greiða Newcastle um 6 milljónir punda í bætur til að fá Howe samkvæmt skilmálum brottfarar hans frá St James' Park. (Telegraph)

Bill Foley, eigandi Bournemouth, hefur samþykkt að bjóða miðjumanninum Alex Scott (23) annan samning sem myndi gera hann launahæstan í sögu félagsins. Chelsea, Liverpool, Arsenal og Tottenham fylgjast öll með þróun mála. (Teamtalk)

Manchester United hefur verið sagt að það þurfi að greiða meira en 70 milljónir punda til að fá vinstri bakvörðinn Lewis Hall (22) frá Newcastle. (Football Insider)

Ajax vill fá framherjann Tolu Arokodare (25) til frambúðar en Nígeríumaðurinn er hjá hollenska félaginu á láni frá Wolves. (Sport Witness)

Crystal Palace mun leitast við að ráða stjóra sem er án félags ef þeir ákveða að reka Frakkann Pierre Sage. (Football Insider)

Thomas Frank, fyrrverandi stjóri Brentford og Tottenham, og Sean Dyche, fyrrum stjóri Everton, Burnley og Nottingham Forest, eru orðaðir við Crystal Palace ef félagið ákveður að losa sig við Sage. (The I)
Vuskovic í leik með króatíska landsliðinu.

Vuskovic í leik með króatíska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Næsti stjóri Man Utd?

Næsti stjóri Man Utd?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.