26.10.26 - 23:19
Elvar Geir Magnússon
Kane þakkaði eiginkonu sinni og fjölskyldu sérstaklega

Katie Goodland og Harry Kane.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Katie Goodland og Harry Kane.

Mynd: EPA
Harry Kane, leikmaður Bayern München, varð í kvöld fyrsti Englendingurinn í 25 ár til að vinna Ballon d'Or gullboltann sem besti leikmaður heims.
Þessi magnaði framherji fór um víðan völl í ræðu sinni; þakkaði liðsfélögum og þjálfurum og sagði það heiður að vera fyrirliði Englands.
Hann þakkaði Tottenham Hotspur og sagði ljóst að án félagsins og þeirrar leiðsagnar sem hann fékk þar þá væri hann ekki á þessum stað í dag.

TENGT EFNI
Kane vann Ballon d'Or verðlaunin (Staðfest)
Hann þakkaði einnig sínum nánustu, þar á meðal foreldrum og eiginkonu sinni og æskuástinni Katie Goodland.
„Ég veit hversu mikinn stuðning þið veitið mér. Við upplifum allar þessar tilfinningar saman. Sú hjálp sem ég fæ utan vallar gerir mér kleift að gera mitt besta inni á vellinum," sagði Kane.
„Mamma og pabbi, þvílík stund. Öll þessi ár, fórnirnar, stuðningurinn sem þið veittuð mér. Að keyra mig á æfingar og koma að horfa á mig spila. Og þið eruð enn með í för í dag. Allir þeir eiginleikar sem þið hafið gefið mér hafa gert mér kleift að ná árangri og vera hér í kvöld."
„Börnin mín heima að horfa, það er komið framyfir háttatíma! Þið eruð ástæðan fyrir því að ég geri þetta. Þessi stund er sérstök. Ég hlakka mikið til að hitta ykkur og fagna með ykkur. Ég elska ykkur mjög mikið."
„Konan mín, Katie, minn besti vinur. Þú ert minn helsti stuðningsmaður. Okkur tókst það. Þú vilt alltaf það besta fyrir mig. Þú fórnar þér til að hjálpa mér að láta drauma mína rætast. Þeir eru líka þínir draumar. Þetta væri ekki hægt án þín.“

HARRY KANE IS THE 2026 BALLON D'OR! #ballondor https://t.co/k3CUlwLF1E
— Ballon d'Or (@ballondor) October 26, 2026

Mynd: EPA