Fotbolti.net
27.10.26 - 11:23
Elvar Geir Magnússon

Mörg félög renna löngunaraugum til Hans Viktors eftir fall KA

Hans Viktor Guðmundsson.

Hans Viktor Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spurning er hvaða breytingar verða á leikmannahópnum hjá KA eftir fallið úr Bestu deildinni en auðvelt er að fullyrða að þetta sé dýrasta lið sem hefur fallið á Íslandi.

Miðvörðurinn Hans Viktor Guðmundsson er sá leikmaður sem hvað flest félög horfa löngunaraugum til.

Hans er 30 ára gamall og algjör lykilmaður hjá KA.
Valur, ÍA, Þróttur, Þór og Keflavík eru félög sem eru sögð áhugasöm og eru líkleg til að skoða möguleikann á því að fá Hans Viktor. Líklegt er að þau séu enn fleiri.

Síðasta haust skrifaði hann undir samning út næsta tímabil en ekki er vitað hvort sá samningur innihaldi einhverja klásúlu sem liðki fyrir mögulegum félagaskiptum í ljósi stöðunnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.