Fotbolti.net
26.10.26 - 21:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Yamal ungi leikmaður ársins þriðja árið í röð

Yamal ungi leikmaður ársins þriðja árið í röð
Canon

Mynd: EPA

Lamine Yamal hefur hlotið verðlaunin ungi leikmaður ársins þriðja árið í röð á Ballon d'Or hátíðinni sem haldin er í Lundúnum í kvöld.

Yamal átti stórkostlegt ár en þessi 19 ára gamli sóknarmaður vann deildina með Barcelona og varð heimsmeistari með Spáni.
Rauði dregillinn í myndum - Yamal og blómið stálu senunni
TENGT EFNI

Rauði dregillinn í myndum - Yamal og blómið stálu senunni

Hann kom að 42 mörkum í 45 leikjum með Barcelona. Þá skoraði hann eitt mark þegar Spánn varð heimsmeistari.

Hann hefði eflaust talið að það væri kominn tími til að vinna þann stóra en hann sagði að liðsfélagi sinn hjá Barcelona og spænska landsliðinu, Pau Cubarsi, hefði átt að vera valinn ungi leikmaður ársins.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.