Fotbolti.net
27.10.26 - 08:40
Elvar Geir Magnússon
Franski boltinn

Varamennirnir græjuðu þrjú stig og toppsætið fyrir PSG

Senny Mayulu.

Senny Mayulu.

Canon

Mynd: EPA

Senny Mayulu og Mika Godts komu inn af bekknum og skoruðu mörkin í lokin þegar Paris Saint-Germain komst upp í toppsæti frönsku deildarinnar með 2-0 sigri á Lyon í gær.

Lyon náði að halda Evrópumeisturnum í skefjum en sjö mínútum eftir að hinn tvítugi Mayulu kom inn af bekknum náði hann að brjóta ísinn á 72. mínútu.

Godts bætti öðru marki við á 84. mínútu eftir snögga skyndisókn. PSG vann því fimmta deildarsigurinn í röð og er á toppnum, stigi á undan Rennes.

Leikurinn á Prinsavöllum átti upphaflega að fara fram á sunnudaginn en lögreglan fyrirskipaði að fresta honum um sólarhring þar sem mótmæli og óeirðir voru í frönsku höfuðborginni um helgina.
Kvaratskhelia sleit krossband
TENGT EFNI

Kvaratskhelia sleit krossband

Ligue 1 - karlar

#LiðLmunStig
1PSG8+717
2Rennes8+416
3Lille8+515
4Mónakó8+415
5Lyon8+614
6Paris FC8+414
7Lens8+413
8Marseille8+512
9Lorient8+112
10Nice8-211
11Toulouse8+110
12Auxerre8-610
13Brest8+29
14Angers8-68
15Le Mans8-57
16Strasbourg8-67
17Troyes8-115
18Le Havre8-72
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.