Fotbolti.net
26.10.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Carrick mættur á æfingasvæðið

Carrick mættur á æfingasvæðið
Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, er á æfingasvæði félagsins. Hann mætti þangað til að horfa á U21-lið félagsins mæta Hull í í leik sem er leikinn bak við luktar dyr.

Framtíð Carrick hangir á bláþræði. Sky Sports segir að framkvæmdastjórinn Omar Berrada og Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála, eru báðir á svæðinu að ræða framtíð hans.
Halda áfram að ræða um framtíð Carrick
TENGT EFNI

Halda áfram að ræða um framtíð Carrick

Á meðan bíður hann eftir ákvörðun en talið er að Carrick verði látinn fara í kjölfarið á 0-3 tapi gegn Bournemouth í gær. Auk áðurnefndra manna er það einnig í höndum Sir Jim Ratcliffe að taka ákvörðun.

Síðustu vikur hafa verið stormasamar hjá Manchester United, gengið hefur verið slæmt og leikmenn gagnrýnt stjórn félagsins og uppleggið. Stór hluti stuðningsmanna beinir pirringi sínum að leikmönnum og stjórnendum félagsins frekar en Carrick en það er þó ljóst að hann er í sjóðandi heitu sæti.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.