Roma vill Casemiro - Napoli og Juventus fylgjast með Höjlund - Úlfarnir búast við tilboðum í Cunha
   þri 28. janúar 2025 11:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Fetar í fótspor frænda sinna - „Hvað meira geturðu beðið um?"
Lengjudeildin
'Þá var bara eina í stöðunni að hlera önnur félög og ég náði að koma mér inn hjá Fjölni'
'Þá var bara eina í stöðunni að hlera önnur félög og ég náði að koma mér inn hjá Fjölni'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skrifar undir tveggja ára samning við Fjölni.
Skrifar undir tveggja ára samning við Fjölni.
Mynd: Fjölnir
'Allir og ömmur þeirra til í að hjálpa manni að komast inn í umhverfið en samt allir svo rólegir og hraðinn á lífinu töluvert minni sem mér fannst frábært'
'Allir og ömmur þeirra til í að hjálpa manni að komast inn í umhverfið en samt allir svo rólegir og hraðinn á lífinu töluvert minni sem mér fannst frábært'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég heyrði í Fjölni því ég taldi möguleika mína um að leika á miðjunni meiri þar'
'Ég heyrði í Fjölni því ég taldi möguleika mína um að leika á miðjunni meiri þar'
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Árni Elvar á Extra vellinum í fyrra. 'Hér er allt til alls, World Class, Egilshöll og Shake&Pizza, hvað meira geturðu beðið um?'
Árni Elvar á Extra vellinum í fyrra. 'Hér er allt til alls, World Class, Egilshöll og Shake&Pizza, hvað meira geturðu beðið um?'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni Elvar Árnason samdi fyrr í þessum mánuði við Fjölni en hann kemur til félagsins frá Þór þar sem hann lék í fyrra. Miðjumaðurinn er uppalinn hjá Leikni og lék þar með meistaraflokki á árunum 2017-2023.

Árni er 28 ára og hefur áður verið í Grafarvogi því seinni hluta sumarsins 2016 lék hann með Vængjum Júpíters. Alls á hann að baki 152 deildarleiki á ferlinum og í þeim hefur hann skorað níu mörk. Árni lék 19 leiki með Þór í fyrra og skoraði eitt mark; glæsilegt mark á heimavelli gegn Keflavík.

Hann ræddi við Fótbolta.net um félagaskiptin í Fjölni og árið hjá Þór.

„Það er bara frábært að vera orðinn leikmaður Fjölnis. Góð tilfinning að vera orðinn gulur og feta í fótspor 6-7-8 frænda minna. Hér er allt til alls, World Class, Egilshöll og Shake&Pizza, hvað meira geturðu beðið um?" veltir Árni Elvar fyrir sér.

Hvernig kemur það til að þú semur við Fjölni?

„Ég verð samningslaus hjá Þór og fljótlega í október kemur í ljós að ég mun ekki fara þangað aftur, bæði þá var ég kominn í nýtt starf í Reykjavík sem mig langaði að halda í og það gekk ekki hjá kærustunni minni (Gyða Kristín) að semja við Þór/KA. Þá var bara eina í stöðunni að hlera önnur félög og ég náði að koma mér inn hjá Fjölni."

Frasakóngar og góður tími í Grafarvoginum
Hvað er mest heillandi við Fjölni?

,Svona til að hafa eitthvað eitt svar þá er það fólkið. Hef einhvern veginn verið umvafinn fólki úr Grafarvogi allt mitt líf þegar ég pæli í því ásamt því að hafa alist þar upp að einhverju leyti en pabbi hefur búið í Rima síðan ég var lítill polli. Ekkert hverfi sem á jafn marga frasakónga og Grafarvogurinn og ég hef gaman af því."

„Ég á náttúrulega mjög skemmtilegt tímabil að baki með venslaliði Fjölnis, Vængjum Júpíters, þar sem ég kynntist mjög skemmtilegum mönnum. Persónulega gekk mér vel í skemmtilegu liði sem var þó farið að dala í lok móts sökum þess að flestir varnarmenn liðsins voru í keppni um hver gæti gefið fleiri mörk til andstæðinga okkar."


Þekktir þú leikmann í Fjölni persónulega fyrir?

„Jájá ég þekkti nokkra fyrir, einhverjir fyrrum liðsfélagar og svo aðrir misgáfulegir sem maður hefur kynnst í gegnum lífið."

Hrun eftir góða byrjun
Hvernig horfir þú til baka á tímabilið með Þór?

„Ég horfi á það vonbrigðaaugum. Við byrjum ágætlega eftir frábært undirbúningstímabil og erum með sex stig eftir fjóra leiki gegn: ÍBV sem fer upp, Aftureldingu sem fer upp, Keflavík sem fer í úrslit umspilsins og Þrótturum sem uxu ásmegin eftir því sem á tímabilið leið. Svo er bara nánast hrun, töpum leikjum sem við erum slakari í, töpum jöfnum leikjum og gerum jafntefli í leikjum sem við erum ofan á í. Vinnum jú Aftureldingu í seinni umferð með góðum leik frá okkar hlið en fylgjum því ekki eftir og Dalvík og Grótta einu liðin sem við náum að vinna og það í næst síðustu og síðustu umferð. Með fullri virðingu fyrir þeim liðum þetta tímabilið þá var það ekki nægilega gott og úr verður 10. sæti tíu stigum fyrir ofan fall."

Af hverju gekk liðinu ekki betur en raun varð?

„Ég myndi segja að það væri samblanda svo margra þátta sem þurfa að vera í lagi 90 mínútur plús í öllum leikjum. Til að nefna eitthvað þá vil ég nefna einbeitingarleysi og talanda. Við lendum undir í 15 af 22 leikjum og það er bara rosalega erfitt andlega að vera alltaf að elta og þessir tveir þættir kannski stór partur í því."

Elskaði tímann á Akureyri
Hvernig fannst þér árið á Akureyri?

„Ég elskaði það frá fyrsta degi. Þetta var töluverð breyting fyrir mig en góð breyting. Allir og ömmur þeirra til í að hjálpa manni að komast inn í umhverfið en samt allir svo rólegir og hraðinn á lífinu töluvert minni sem mér fannst frábært. Svo er auðvitað allt til alls þarna nema kannski Skopp hoppugarðurinn og Keflavíkurflugvöllur. Svo fær það að fylgja með að ég þarf einhvern snilling í að opna stað eins og Sykurverk á Akureyri og bjóða upp á crepes með mat. Eitthvað til að deyja fyrir."

Langar að vinna deildina
Hvað langar þig að afreka með Fjölni?

„Mig langar auðvitað að vinna Lengjudeildina. Annars láta gott af mér leiða og vonandi skilja eitthvað eftir hjá hinum sem yngri eru, sem eru allir nema einn."

Framherjadraumurinn dó 2021
Þú spilaðir eitthvað með Leikni, var það nálægt því að verða meira?

„Ég fór á æfingar með Leikni, spilaði tvo æfingaleiki sem framherji og ræddi við Óla og Nemma (þjálfarar Leiknis) og svona úr varð að ég heyrði í Fjölni. Leiknir er á góðum stað varðandi miðjumenn og framherjadraumurinn sem einu sinni var hvarf eftir 2021 tímabilið þegar ég spilaði sjö leiki sem framherji eftir að Sævar Atli var keyptur til Lyngby. Ekki bara að ég hafi skorað núll mörk þá skoraði liðið í heild að mig minnir bara tvö mörk. Þannig eins og ég sagði fyrir ofan þá heyrði ég í Fjölni því ég taldi möguleika mína um að leika á miðjunni meiri þar," segir Árni Elvar.
Athugasemdir
banner
banner