Fotbolti.net
28.01.25 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Meiðsli Mings ekki alvarleg

Meiðsli Mings ekki alvarleg
Canon

Mynd: EPA

Varnarmaðurinn Tyrone Mings fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í 1-1 jafntefli Aston Villa gegn West Ham um helgina.
Bakvörðurinn Lucas Digne þurfti að fylla í skarðið í hjarta varnarinnar þar sem Pau Torres er meiddur og Diego Carlos var seldur til Fenerbahce á dögunum.

Stuðningsmenn Aston Villa óttuðust að Mings yrði lengi frá þar sem hann á nokkuð slæma meiðslasögu að baki, en sú virðist raunin ekki vera.

„Ég hef lent í slæmum hnémeiðslum á ferlinum og þetta eru ekki ein af þeim. Takk fyrir öll skilaboðin," skrifaði Mings á Instagram í morgun.

Mings er 31 árs gamall og hefur fyllt vel í skarðið fyrir Pau Torres sem meiddist í desember.

Aston Villa er í leit að nýjum miðverði fyrir lok janúargluggans.
Meiðsli Mings ekki alvarleg
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.