Fotbolti.net
28.04.22 - 14:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Víkingar þurfa að vera reiðir í kvöld - „Tvær ástæður fyrir því að það er erfitt að vinna þetta mót"

Auglýsing
Arnar Gunnlaugsson

Arnar Gunnlaugsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líst mjög vel á að það sé leikur í kvöld. Það er gott að fá þennan leik fljótt eftir Skagaleikinn. Við þurfum að vera vel gíraðir og vera reiðir í kvöld - vera aggresívir og sýna miklu betri frammistöðu heldur en við sýndum upp á skaga," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, við Fótbolta.net í dag.

Víkingur á leik gegn Keflavík í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á Víkingsvelli.
Hvernig eru dagarnir eftir tapleik?

„Það er bara martröð, fyrst ferðu að vorkenna sjálfum þér í svona hálfan sólarhring og horfir á leikinn sirka fjórum sinnum. Þú reynir að finna einhverjar ástæður og þessháttar og þú finur hana oftast. Oftast eru þetta einföldur ástæðurnar [eins og] einföld grunnvinna. Skagaliðið var rosa baráttuglatt en það má ekki gleyma því að þeir skoruðu upp úr tveimur hornspyrnum og einu löngu innkasti. Þú reynir að horfa á eitthvað svona og reynir að peppa strákana upp í leiðinni. Þetta var ekki alslæmt en ekki nógu gott."

Hefur það mikið að segja að leikurinn í kvöld er á heimavelli?

„Já, klárlega. Það er ógeðslega erfitt að vinna þetta mót hér á Íslandi og fyrir því eru í raun tvær einfaldar ástæður. Þetta eru tvær íþróttir. Þetta er annars vegar grasvallaríþróttin og svo er það gervigrasíþróttin. Þetta eru tveir ólíkir leikir og það er mikil áskorun að spila á báðum völlum, sérstaklega svona snemma á tímabilinu. Grasleikirnir verða oft læti og barátta."

„Ég hafði t.d. mjög gaman af KR - Breiðablik, það voru læti og barátta en ég held að við hefðum fengið að sjá meiri fótboltagæði ef leikurinn hefði farið fram á heimavelli Blika til dæmis. Þetta er bara áskorun fyrir alla íslenska fótboltamenn."

„Þú þarft að standast þá áskorun og ég held að við séum kannski orðnir of 'soft' gervigraslið eins og staðan er í dag þannig við þurfum að mæta vel gíraðir til leiks þegar við mætum Leikni eftir 1-2 vikur á þeirra grasvelli. Það eru sex grasleikir í sumar og þú þarft að vera klár í þá alla. Við klikkuðum á fyrstu prófrauninni,"
sagði Arnar.

Sjá einnig:
„Megum ekki verða 'soft' gervigraslið sem er gaman að horfa á en nær engum árangri"

Í viðtalinu talar hann einnig um meiðsli Pablo Punyed og áhuga Víkings á Valgeiri Valgeirssyni, leikmanni HK.
Tvær mismunandi íþróttir. Gervigrasíþróttin verður spiluð í kvöld.

Tvær mismunandi íþróttir. Gervigrasíþróttin verður spiluð í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.