Fotbolti.net
28.05.17 - 22:16
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Óli Stefán: Valur besta fótboltaliðið á Íslandi í dag

Auglýsing
Óli Stefán Flóventsson

Óli Stefán Flóventsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Óli Stefán Flóventsson var gríðarlega sáttur eftir sigur sinna manna gegn Val í kvöld.

<i>„Þetta var mjög flott. Ég er ánægður með strákana og þeir unnu vel fyrir þessu. Þetta var að mínu viti verðskuldað,\"</i>

Óli Stefán hefur miklar mætur á liði Vals og segir þett vera besta fótboltaliðið á Íslandi. Sigurinn var því afar sætur.

<i>„Ég hef sagt að Valur er besta fótboltaliðið á Íslandi í dag. Þeir minna mig rosalega á FH-liðið 2003-2004 þegar Tommy Nielsen og Allan Borgvardt voru uppá sitt besta. Þess vegna gerir þetta þennan sigur fyrir Grindavík ennþá stærri og meiri.\"</i>

Aron Freyr Róbertsson hefur staðið sig virkilega vel í stöðu hægri bakvarðar í sumar og er Óli Stefán ánægður með hann.

<i>„Aron er frábær fótboltamaður og hann er að þroskast mjög hratt og er að grípa tækifærið. Mér finnst að þetta vera strákur sem menn ættu að horfa eftir þegar menn eru að skoða landsliðin. Ég held að hann sé gjaldgengur í 21 árs landsliðið.\"</i>
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.