Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
   sun 28. maí 2023 22:19
Arnar Laufdal Arnarsson
Jökull: Hefði verið gaman að fá meira út úr þessum leik
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Leikurinn var mjög erfiður. Svo sem nákvæmlega eins og við áttum von á. Við áttum von á að það gæti verið fast leikatriði sem myndi skera um úrslitin þannig mér fannst við sterkir þar og ég hefði viljað sjá okkur nýta færin sem við komum okkur í, sérstaklega í fyrri hálfleik." sagði Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar eftir tapið gegn KR á Meistaravöllum í kvöld.

Lestu um leikinn: KR 1 -  0 Stjarnan

Tapið hjá Stjörnunni í kvöld á Meistaravöllum var fyrsta tap Jökuls Elísabetarsonar undir hans stjórn og var Jökull spurður hvað það þýði fyrir framhaldið.

„Það þýðir ekki neitt. Við gerum bara það sama eins og eftir sigurleiki .Við skoðum hvað við getum gert betur og gerum það og það er stutt í að við komum á þennan völl aftur þannig við verðum klárir."

KR er uppeldisfélag Jökuls Elísabetarsonar og segir Jökull alltaf gaman að koma á KR völl en hann var að mæta á Meistaravelli í fyrsta skipti sem aðalþjálfari.

„Alltaf gaman að koma á KR völl, alveg sama hvort þú sért leikmaður eða þjálfari eða hvað sem er. Það er sjarmi yfir þessum velli þannig það hefði verið gaman að fá meira út úr þessum leik því mér fannst við vinna fyrir því."
Athugasemdir
banner
banner