Fotbolti.net
28.06.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rosenörn leggur hanskana á hilluna

Rosenörn leggur hanskana á hilluna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski markvörðurinn Mathias Rosenörn hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna. Hann greinir frá þessu á Instagram síðu sinni.

Rosenörn er 33 ára en hann kom fyrst hingað til lands árið 2023 og spilaði með Keflavík í Bestu deildinni. Hann færði sig um set ári síðar og var varamarkvörður hjá Stjörnunni. Ferlinum lauk síðan með FH í fyrrasumar.
ÍA reyndi að fá Rosenörn í sumar eftir að Árni Marinó Einarsson, aðalmarkvörður liðsins, meiddist en ekkert varð úr því.

Hann segist taka þessa ákvörðun til að vera til staðar fyrir börnin sín og fjölskylduna.

„Þakkir til allra liðsfélaga, þjálfara, starfslið, sjálfboðaliða og allra sem ég hef kynnst á leiðinni. Þið hafið öll spilað hlutverk í þessu ferðalagi og ég hefði ekki getað þetta án ykkar," skrifar hann m.a. á Instagram.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.