Fotbolti.net
28.06.26 - 01:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Kólumbía vann riðilinn eftir jafntefli gegn Portúgal - Kongó mætir Englandi

HM: Kólumbía vann riðilinn eftir jafntefli gegn Portúgal - Kongó mætir Englandi
Canon

Mynd: EPA

Kólumbía og Portúgal mættust í úrslitaleik um toppsætið í K-riðli á HM í nótt en Portúgal þurfti að vinna.

Fyrri hálfleikurinn var fjörugur og bæði lið fengu góð færi til að komast yfir. Kólumbía var með yfirhöndina en markalaust var í hálfleik.
Portúgal byrjaði seinni hálfleikinn vel og Joao Felix og Cristiano Ronaldo fengu færi en fóru illa með þá möguleika. Eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik þurfti Diogo Costa í marki Portúgal að taka á honum stóra sínum og varði langskot í tvígang.

Kólumbía hélt áfram að sækja og Davinson Sanchez hélt að hann hafi tryggt Kólumbíu sigurinn þegar hann skoraði með skalla í uppbótatíma en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Rafael Leao brunaði inn á teig Kólumbíu strax í kjölfarið en skotið ekki nægilega gott og boltinn fór framhjá.

Kongó er komið í 32-liða úrslitin eftir sinn fyrsta sigur á heimsmeistaramóti. Andstæðingur Kongó í 32-liða úrslitunum verður England. Eldor Shomurodov kom Úsbekistan yfir eftir tíu mínútna leik. Úsbekistan stökk þá upp fyrir Kongó í 3. sæti riðilsins.

Kongó fékk vítaspyrnu þegar 68. mínútur voru liðnar af leiknum og Yoane Wissa, framherji Newcastle, skoraði úr henni og jafnaði metin. Varnarmenn Úsbekistan komust fyrir skot þegar um tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma en Fiston Mayele náði boltanum og kom Kongó yfir.

Þá var Kongó komið í 3. sætið og á leiðinni áfram. Wissa innsiglaði sigur Kongó í lokinn og farseðilinn í 32-liða úrslitin og mæta þar Englandi.

Kólumbía 0 - 0 Portúgal

Kongó 3 - 1 Úsbekistan
0-1 Eldor Shomurodov ('10 )
1-1 Yoane Wissa ('68 , víti)
2-1 Fiston Mayele ('78 )
3-1 Yoane Wissa ('90 )
Kongó mætir Englandi

Kongó mætir Englandi

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.