Fotbolti.net
27.06.26 - 16:44
Ívar Björgvinsson

Badu: Skiptir kannski miklu máli þegar tímabilið er búið

Auglýsing
Badu: Skiptir kannski miklu máli þegar tímabilið er búið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Þróttur tók á móti Vestra á AVIS vellinum í 11. umferð Lengjudeildar karla. Leikar enduðu 1-1 eftir mark frá Þrótti í uppbótartíma en Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og heyrði í Daniel Osafo-Badu, þjálfara Vestra, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 1 Vestri

„Ég er mjög stoltur af liðinu. Við vorum að verjast mikið og gáfum allt okkar í þenna leik. Við reyndum að stela sigrinum en það gekk ekki í dag.''

Vestri komst snemma yfir og varðist síðan meginþorrann af leiknum. Var það leikplanið frá upphafi?

„Þróttur er mjög gott lið og við vildum spila okkar leik en þeir voru of góðir til þess að leyfa okkur að gera það. Við vorum of djúpt á vellinum en Þróttur er lið sem lætur flest lið í deildinni lenda í því.''

Engu að síður nær Vestri í stig á útivelli gegn toppliði deildarinnar.

„Við komum auðvitað hingað til þess að vinna en við gerðum það ekki í dag. Ef þú nærð ekki að vinna þá er næstbest að taka eitt stig og við gerðum það. kannski er þetta eitt stig sem skiptir miklu máli þegar tímabilið er búið.''

Vestri hefur náð í flest sín stig í síðustu sex leikum frekar en fyrstu sex. Er liðið að bæta sig?

„Við vissum að við yrðum betri eftir fleiri leiki sem við fáum að spila. Undirbúningstímabilið var mjög erfitt og það er mjög eðlilegt að við séum betri núna en við vorum í apríl. Við erum ekki á þeim stað sem við viljum vera, við viljum vera betri en við þurfum að legga hart að okkur til að ná því.''

Vestri á Grindavík í næsta leik og síðan er það Qarabag í Aserbaídsjan.

„Næstu vikur eru mjög spennandi og mikið til að undirbúa fyrir Qarabag leikinn en við þurfum að hafa mjög mikinn fókus á Grindavíkurleiknum. Það er erfiður útivöllur og eins og í öllum leikjum verðum við að vera tlbúnir til þess að sækja þrjú stig.''

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.