Fotbolti.net
27.06.26 - 16:22
Ívar Björgvinsson

Venni: Gæti verið liðband í hné

Auglýsing
Venni: Gæti verið liðband í hné
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Þróttur tók á móti Vestra á AVIS vellinum í 11. umferð Lengjudeildar karla. Leikar enduðu 1-1 eftir mark frá Þrótti í uppbótartíma en Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og heyrði í Sigurvini Ólafssyni, þjálfara Þróttar, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 1 Vestri

„Ég held að það hafi verið sanngjarnt að við höfum náð að jafna þó að markið hafi komið mjög seint. Nánast allan leikinn, en sérstaklega í seinni hálfleik, þá liggja þeir í vörn og við erum að reyna að brjóta þá sem var mjög erfitt. Vestri er virkilega vel skipulagt lið og þeir reyndu að stoppa götin og gerðu það vel og fá fyrir það eitt stig.''

Sigurður Egill fór snemma af velli eftir meiðsli á hné en hann virtist sárþjáður. 

„Leikurinn var nú bara að klárast svo ég er ekki með greiningu á honum en ég er pínulítið hræddur um að þetta gætu verið einhverjar vikur. Þetta gæti verið liðband í hné. Ég hef ekki heyrt nákvæmt update frá sjúkrateyminu en mig grunar að þetta sé það.''

Eftir ellefu umferðir er Þróttur á toppi Lengjudeildarinnar en hvernig metur Venni þessa fyrri umferð mótsins?

„Ég get auðvitað ekki kvartað að hafa endað fyrri umferðina á toppnum, það er samt nokkrir leikir sem við hefðum viljað geta gert betur í. Í heildina hef ég ekkert að kvarta yfir varðandi frammistöðu, leikmennirnir eru ógeðslega duglegir og vinna alltaf vinnuna sína. En fyrri umferðin er auðvitað ekki nóg og við þurfum að leggja hart af okkur til að ná markmiðum okkar.''

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.