Fotbolti.net
28.06.26 - 10:16
Brynjar Ingi Erluson

Como í viðræðum við Chelsea - Real Madrid í baráttuna um Diomande

Trevoh Chalobah til Como?

Trevoh Chalobah til Como?

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Como vill fá enskan landsliðsmann, Real Madrid er komið í baráttuna um hinn eftirsótta Yan Diomande og Barcelona er tilbúið að bíða eftir Marcus Rashford. Þetta og meira til er í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Como hefur lagt fram 23 milljóna punda tilboð í Trevoh Chalobah (26), varnarmann Chelsea og enska landsliðsins, en Chelsea vill fá 30 milljónir. (Sky Sports)

Everton er í lykilstöðu í baráttunni um enska framherjann Liam Delap (23), sem er á mála hjá Chelsea. Everton vinnur að því að ná samkomulagi við leikmanninn. (Football Insider)

Brighton hefur lagt fram formlegt 29 milljóna punda tilboð í Honest Ahanor (18), miðvörð Atalanta, en félagið reynir að fylla skarðið sem Jan Paul van Hecke skildi eftir sig þegar hann fór til Tottenham. (Ben Jacobs)

Real Madrid er komið í baráttuna við Liverpool og Paris Saint-Germain um Yan Diomande (19), vængmann Leipzig og landsliðsmann Fílabeinsstrandarinnar. (El Debate)

Argentínumaðurinn Mauricio Pochettino, sem hefur verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina, er með fjögurra ára samning á borðinu frá bandaríska fótboltasambandinu. (Talksport)

Inter er að íhuga að hætta að eltast við enska miðjumanninn Curtis Jones (25) hjá Liverpool. Enska félagið metur hann á um 34,5 milljónir punda á meðan Ítalíumeistararnir vilja ekki borga meira en 21,5 milljónir fyrir Jones, sem verður samningslaus á næsta ári. (Calciomercato)

Atlético Madríd hefur reynt að sannfæra argentínska framherjann Julian Alvarez (26) um að vera áfram, en hann hefur ítrekað að hann vilji fara til Barcelona. (Mundo Deportivo)

Þýski miðjumaðurinn Felix Nmecha (25), sem spilar með Borussia Dortmund og þýska landsliðinu, er of dýr fyrir Newcastle United. Félagið spurðist fyrir um hann og fékk þá að vita að verðmiðinn væri í kringum 100 milljónir evra. (Chronicle)

Vonir Manchester United um að styrkja miðsvæðið frekar eru bundnar við meiðsli úrúgvæska miðjumannsins Manuel Ugarte (25), sem var borinn af velli í tapi Úrúgvæ gegn Spáni á HM á dögunum. (Mail)

Nýliðar Hull City hafa áhuga á belgíska hægri bakverðinum Thomas Meunier (34), sem verður laus allra mála hjá Lille um mánaðamótin. (Talksport)

Marcus Rashford (28), leikmaður Manchester United, vill snúa aftur til Barcelona eftir að hafa eytt síðasta tímabili þar á láni, en spænska félagið ætlar að bíða eitthvað fram á sumar með að ganga frá kaupunum. (Teamtalk)
Real Madrid hefur áhuga á Diomande

Real Madrid hefur áhuga á Diomande

Canon

Mynd: EPA

Barcelona gæti enn fengið Rashford

Barcelona gæti enn fengið Rashford

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.