Fotbolti.net
27.06.26 - 23:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eggert Gunnþór svekktur: 2004 Eggi hefði klárað þetta

Auglýsing
Eggert byrjaði á hliðarlínunni en skipti sjálfum sér inn á á lokakaflanum.

Eggert byrjaði á hliðarlínunni en skipti sjálfum sér inn á á lokakaflanum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KFA tapaði á grátlegan hátt gegn Dalvík/Reyni á útivelli í 2. deild í dag. Sigurmark heimamanna kom í uppbótartíma beint úr hornspyrnu. Gestirnir voru sterkara liðið allan leikinn en náðu ekki að skora hjá heimamönnum og uppskáru núll stig.

Fótbolti.net ræddi við spilandi þjálfara liðsins, Eggert Gunnþór Jónsson, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Dalvík/Reynir 1 - 0 KFA
„Það var þungt að fá þetta mark á sig beint úr horni, svo sannarlega ekki það sem við áttum skilið. Mér fannst við heilt yfir vera miklu betra liðið eiginlega allan leikinn. Það sem er meira svekkjandi er að dómarinn dæmir ekki augljósa hendi á Dalvík í sókninni áður en þeir fá hornið. En það er bara eins og það er, við þurfum að vera búnir að gera meira en nóg til að gera út um leikinn," segir Eggert svekktur.

Þetta var fjórði leikur KFA í röð sem liðið fær á sig mark undir lok leiks og KFA hefur einungis fengið eitt stig úr leikjunum fjórum.

„Sumt hefur verið einstaklingsmistök, sumt verið einbeitingarleysi. Þetta er fjórði leikurinn í röð sem við erum ekki að fá það sem við eigum skilið. Það er oft þannig að þegar það rigni þá hellirignir, það er akkúrat tilfinning núna. En yfirleitt finnur fótboltinn leið þannig að þú færð það sem þú átt skilið. Þannig ef við spilum svona, þá veit ég að þetta flippast í hina áttina fljótlega."

„Ég er ekki sáttur við úrslitin, en frammistöðurnar hafa verið mjög góðar. Við vorum ekki með lítið sjálfstraust í dag og það var ánægjulegt, strákarnir hafa bæði mikla getu og trú á þessu. En það er náttúrulega virkilega svekkjandi hvernig þetta fór í dag."


Eggert skipti sjálfum sér inn á þegar um stundarfjórðungur lifði leiks. Undir lok venjulegs leiktíma slapp hann í gegn og komst í mjög gott færi, en náði ekki að nýta það.

„Ég næ að klafsast í gegn og er að fara slútta, því miður var boltinn á vinstri löppinni og varnarmaðurinn þeirra kemst bara fyrir. Hugsanlega hefði ég átt að vera búinn að taka færið fyrr, en það var svo mikið eftir að teignum þegar ég slapp í gegn að ég ákvað að taka eina snertingu. 2004 Eggi hefði sennilega klárað þetta, það vantaði aðeins upp á þarna," segir Eggert á léttu nótunum en hann er fæddur 1988 og spilaði á sínum tíma lengi sem atvinnumaður erlendis og lék 21 landsleik.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
KFA átti meira skilið úr leiknum í dag.

KFA átti meira skilið úr leiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Eggert Gunnþór svekktur: 2004 Eggi hefði klárað þetta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar10+1120
2Dalvík/Reynir10+619
3Kári10+1217
4Selfoss10+116
5Kormákur/Hvöt10+1215
6Fjölnir10+414
7Víkingur Ó.10-414
8KFG10-1512
9Hvíti riddarinn10-411
10KFA10+210
11Þróttur V.10-710
12Magni10-188
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.