Fotbolti.net
27.06.26 - 19:06
Andri Stefánsson

John Andrews: Við tökum einn leik í einu

Auglýsing
John Andrews þjálfari KR

John Andrews þjálfari KR

Canon

Mynd: KR

Hertz
KR vann 6-0 sigur á Tindastól í Lengjudeild kvenna í dag. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við John Andrews þjálfara KR eftir þægilegan sigur.
Aðspurður um fyrstu viðbrögð eftir leik:

Frammistaðan var mjög góð. Við gátum gefið leikmönnum sem hafa fengið færri mínútur tækifæri án þess að það hefði áhrif á leik okkar. Við erum ánægð og það var gaman að sjá þá sem mættu á völlinn fá góða skemmtun. Vonandi koma enn fleiri næst.

Aðspurður um hvort sæti í efstu deild sé orðinn raunhæfur möguleiki:

Við hugsum ekkert um það. Við einbeitum okkur einfaldlega að því að bæta okkur á hverjum degi. Hvað sem gerist í lok tímabils verður frábært, en núna snýst allt um framfarir.

Aðspurður um mögulegan liðsstyrk í félagaskiptaglugganum:

Við erum ekki að leita að nýjum leikmönnum. Hópurinn er sterkur og flestir leikmennirnir eru uppaldir hjá félaginu. Ef við fáum Makaylu til baka síðar á tímabilinu verður hún eins og nýr leikmaður fyrir okkur.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.