Fotbolti.net
28.06.26 - 04:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Messi innsiglaði sigur Argentínu - Sturluð dramatík er Alsír og Austurríki komust áfram

Lionel Messi

Lionel Messi

Canon

Mynd: EPA

Riðlakeppninni á HM lauk í nótt þegar lokaumferðin í J-riðli var spiluð.

Argentína endaði með fullt hús stiga eftir sigur á Jórdaníu. Lionel Messi hafði skorað öll fimm mörk Argentínu til þessa á mótinu en hann byrjaði á bekknum.
Argentína var með yfirhöndina eins og búast mátti við og Giovani Lo Celco kom liðinu yfir þegar hann skoraði laglegt mark beint úr aukaspyrnu.

Argentína fékk vítaspyrnu eftir hættuspark og Lautaro Martinez bætti öðru markinu við.

Jórdanía gafst ekki upp. Varamaðurinn Mousa Tamari henti sér á boltann og kom honum í netið eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik og minnkaði muninn.

Messi kom inn á stuttu síðar og hann innsiglaði 3-1 sigur liðsins með marki beint úr aukaspyrnu.

Austurríki og Alsír börðumst um 2. sæti í riðlinum en Austurríki var í 2. sæti fyrir leikinn með þrjú stig eins og Alsír.

Marko Arnautovic kom Austurríki yfir þegar hann slapp einn í gegn og setti boltann snyrtilega framhjá markverði Alsír. Rafik Belghali lék á tvo varnarmenn Austurríki undir lok fyrri hálfleiks og skoraði af stuttu færi og jafnaði metin.

Marcel Sabitzer endurheimti forystuna fyrir Austurríki þegar hann fékk sendingu frá Konrad Laimer út í teiginn og skoraði með föstu skoti.

Ryad Mahrez jafnaði hins vegar metin stuttu síðar. Hann kom síðan Alsír yfir í uppbótatíma en Sasa Kalajdzic kom inn á sem varamaður og skoraði strax í kjölfarið og bjargaði stigi og mótinu fyrir Austurríki í blálokin. Alsír og Austurríki fara bæði í 32-liða úrslitin.

Algeria 3 - 3 Austria
0-1 Marko Arnautovic ('28 )
1-1 Rafik Belghali ('45 )
1-2 Marcel Sabitzer ('55 )
2-2 Riyad Mahrez ('60 )
3-2 Riyad Mahrez ('90 )
3-3 Sasa Kalajdzic ('90 )

Jordan 1 - 3 Argentina
0-1 Giovani Lo Celso ('19 )
0-2 Lautaro Martinez ('31 , víti)
1-2 Mousa Tamari ('55 )
1-3 Lionel Messi ('80 )
Riyad Mahrez

Riyad Mahrez

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.