Eiður Smári: Leið ekki eins og ég væri að horfa á verðandi heimsmeistara

Mynd: EPA

Mynd: EPA
„Mér leið ekki eins og ég væri að horfa á verðandi heimsmeistara," sagði Eiður Smári Guðjohnsen í HM-stofunni á RÚV eftir 2-0 sigur Englendinga gegn Panama í lokaumferð L-riðils á HM í kvöld.

TENGT EFNI
HM: Kane bætti met Lineker og England vann riðilinn
England var ekki mjög sannfærandi í kvöld en Jude Bellingham og Harry Kane skoruðu mörkin í seinni hálfleik.
England átti einnig í vandræðum gegn Gana en þeim leik lauk með markalausu jafntefli.
„Það sem við vonum að muni gerast og við sáum í fyrsta leik gegn Króatíu, þegar England mætir sterkari andstæðing þar sem er meira pláss til að spila og hlaupa í þá vonum við að þeirra leikur hækki. Með því að spila gegn betri andstæðingum að þeir verði betri sjálfir," sagði Eiður.