Chelsea nær samkomulagi við Xhaka

Granit Xhaka er líklega á leið til Chelsea

Mynd: EPA

Svissneski miðjumaðurinn Granit Xhaka hefur náð munnlegu samkomulagi við Chelsea um að ganga í raðir félagsins, en þetta segir Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi og tekur Fabrizio Romano undir.
Granit Xhaka er 33 ára gamall og er þessa stundina á heimsmeistaramótinu með landsliði Sviss.
Hann er samningsbundinn Sunderland til ársins 2028 en samkvæmt Florian Plettenberg vill hann yfirgefa félagið og ganga í raðir Chelsea.
Xhaka er sagður vilja ólmur spila aftur undir stjórn Xabi Alonso, en þeir félagarnir unnu saman hjá Bayer Leverkusen þar sem þeir unnu þýsku deildina og bikarinn árið 2024.
Hann var frábær með Sunderland á nýafstöðnu tímabili. Sunderland var nýliði í ensku úrvalsdeildinni en kom öllum á óvart og hafnaði í 7. sæti. Þar með tryggði liðið sig í deildarkeppni Evrópudeildarinnar fyrir næstu leiktíð.
Nú vill hann nýja áskorun en hann er sagður hafa náð munnlegu samkomulagi við Chelsea. Xhaka hefur verið reiðubúinn að gefa verulega eftir í launaviðræðum, aðeins til þess að fá tækifærið til að endurnýja kynni sín við Alonso og flytja aftur til Lundúna, en hann lék með Arsenal frá 2016 til 2023.
Chelsea er í sambandi við Sunderland sem er talið vilja rúmar 30 milljónir punda fyrir svissneska landsliðsmanninn.