Rooney vill ekki sjá VAR - „Er að eyðileggja leikinn"

Davinson Sanchez og Cristiano Ronaldo í baráttunni

Mynd: EPA

Wayne Rooney, sérfræðingur á BBC og fyrrum landsliðsmaður Englands, var ekki sáttur með VAR í leik Kólumbíu og Portúgal á HM í nótt.
Davinson Sanchez kom boltanum í netið þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma en markið var dæmt af þar sem táin var fyrir innan og rangstaða dæmd.

Þetta kom ekki að sök þar sem Kólumbía endaði á toppnum og Portúgal endaði í 2. sæti og bæði liðin komust áfram í 32-liða úrslitin.
„Hann virðist réttstæður. Þetta er það sem ég er að tala um með var, í burtu með það. Það er að eyðileggja leikinn fyrir mér," sagði Rooney.
„Hann er réttstæður, mér er sama hvað þeir segja mér og hvaða upplýsingar þeir gefa mér. Þetta getur ekki verið rangstaða. Hugsið ykkur ef þetta hefði gert gæfumuninn fyrri Kólumbíu og þeir væru úr leik."