„Einn versti dagur lífs míns"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nico Williams, landsliðsmaður Spánar, er mjög pirraður eftir að hann meiddist í 1-0 sigri Spánar gegn Úrúgvæ í lokaumferð H-riðils í nótt.
Williams hefur verið gríðarlega óheppinn með meiðsli undanfarið ár. Hann meiddist eftir að Úrúgvæinn Nicolas de la Cruz braut á honum. Williams er mjög ósáttur við De la Cruz.

„Dagurinn í dag er einn versti dagur lífs míns. Ég er meiddur aftur eftir mjög erfitt ár. Meiðslin hafa unnið margar orustur en ekki stríðið. Mér hefur tekist að komast yfir þetta með erfiðisvinnu, fórn og umfram allt ábyrgð," sagði Williams.
„Í gær varð ég fyrir öðrum meiðslum eftir að kollegi minn brást við af gremju, óánægju og sorg yfir aðstæðum sínum. Þetta var leikrit sem að mínu mati hefði mátt komast hjá því það var algjör óþarfi."
Williams er áfram í leikmannahópi Spánar og það er von um að hann geti tekið frekari þátt á mótinu.