Fotbolti.net
28.07.18 - 17:03
Ester Ósk Árnadóttir

Ian Jeffs: Þeirra styrkleiki en okkar veikleiki

Auglýsing
Ian Jeffs.

Ian Jeffs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hertz
Mér fannst leikurinn sjálfur bara vera mjög jafn. Það var lítið af færum en þetta snérist um föstu leikatriðin sem þær skora tvö mörk úr. Það er þeirra styrkleiki en okkar veikleiki og það sást í dag,\" sagði Ian Jeffs þjálfari ÍBV eftir 0-2 tap gegn Þór/KA á Þórsvellinum.
ÍBV var líklegri fyrstu tuttugu mínúturnar af leiknum en fengu mark á sig úr föstu leikatriði.



Já alveg klárlega, mér fannst þessar fyrstu tuttugu við vera betra liðið en við erum búinn að lenda í því svolítið oft að við erum að gera vel en fáum á okkar svona mark.\"  



ÍBV er í 5. sæti með 14 stig eftir 12. umferðir.



Þetta er búið að vera svolítill vonbrigði í sumar en miða við hvernig mannskapurinn er búinn að vera hjá okkur, mikið af meiðslum þá vill ég hrósa stelpunum fyrir að þær eru búnar að vera að stíga upp. Þetta snýst um að gefa bara allt í hvern einasta leik sem eftir er og reyna að safna sem flestum stigum, það er okkar markmið.\"  



Það hefur vakið athygli að á varamannabekk ÍBV hafa verið fleiri en einn varamarkmaður í síðust leikjum. Í leiknum á móti FH voru þrír varamarkmenn og í dag voru tveir.



Já ef fyrsti markmaður meiðist þá erum við með annan og ef hann meiðist þá erum við með þriðja og fjórða. Neinei við erum bara með lítinn hóp og þessir markmenn sem hafa verið á bekknum eru bara gríðarlega sterkar fyrir okkar liðsheild og hópinn. Ég vil frekar hafa þær með í staðinn fyrir að setja fjórða flokks stelpur á bekkinn. Svona er þetta hjá okkur, við erum með lítinn hóp og marga meidda leikmenn. Svo er lítil fjöldi í öðrum flokki.\"  



ÍBV á Breiðablik í næsta leik.



Ef við spilum eins og við spiluðum í dag með agaðan og góðan varnarleik þá getum við unnið hvaða lið sem er.\" 



Hægt er að horfa á viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan. 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.