Fotbolti.net
28.09.22 - 22:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sinisterra: Vil nýta öll tækifæri í lífinu

Luis Sinisterra (t.v.)

Luis Sinisterra (t.v.)

Canon

Mynd: EPA

Luis Sinisterra landsliðsmaður Kólumbíu skoraði þrjú mörk í landsleikjum vikunnar en hann skoraði eitt gegn Gvatemala og tvö gegn Mexíkó, um var að ræða tvo æfingaleiki.

Þessi 23 ára gamli vængmaður gekk til liðs við Leeds United frá Feyenoord í sumar en hann hefur skorað tvö mörk í fimm leikjum fyrir enska félagið.

Hann hefur leikið sjö landsleiki en þetta voru fyrstu mörkin hans fyrir þjóð sína. Hann er staðráðinn í því að festa sig í sessi í kólumbíska hópnum.

„Ég vil nýta öll litlu tækifærin í lífinu. Fara út á völl með besta hugarfarið og hjálpa liðinu. Ég reyni alltaf að standa uppúr hjá mínu félagi til að fara í landsliðsverkefni. Ég hef staðið mig vel og þess vegna er ég hér," sagði Sinisterra.

Ég vil þakka þjálfaranum fyrir tækifærið, ég er hungraður í að halda áfram að leggja mitt af mörkum fyrir kólumbíska landsliðið."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.