Fotbolti.net
28.11.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Mikael Brune og Lára Hafliðadóttir ráðin til Víkings

Lára og Mikael sitthvoru megin við John Andrews, yfirþjálfara meistaraflokks kvenna.

Lára og Mikael sitthvoru megin við John Andrews, yfirþjálfara meistaraflokks kvenna.

Canon

Mynd: Víkingur R.

Kvennaboltinn

Víkingur R. hefur ráðið Mikael Brune og Láru Hafliðadóttur til starfa fyrir meistara- og 2. flokk kvenna.

Mikael mun sjá um styrktarþjálfun beggja flokka og aðstoða við líkamlegar mælingar en hann hefur lokið B.Sc námi í íþróttafræði við HR og var í starfsnámi hjá Guðjóni Erni, fitnessþjálfara meistaraflokks karla hjá Víkingi. Mikael sá um styrktarþjálfun hjá 3. og 4. flokki karla og kvenna á síðasta tímabili við góðan orðstír.

Lára, sem á yfir 150 leiki að baki með meistaraflokki Víkings, verður með yfirumsjón og úrvinnslu á GPS mælingum ásamt því að sjá um líkamlegar mælingar. Hún mun starfa í nánu samstarfi með Mikael og veita ráðgjöf varðandi álagsstýringu, þol- og styrktarþjálfun kvennaliðsins.

Lára er með meistaragráðu í Íþróttavísindum og þjálfun frá HR, KSÍ-B þjálfaragráðu auk annarra þjálfararéttinda. Lára hefur sérhæft sig í mælingum og styrktar- og þolþjálfun knattspyrnufólks sem hún kennir meðal annars á þjálfaranámskeiðum KSÍ. Hún starfar einnig hjá Greenfit þar sem hún aðstoðar m.a. knattspyrnufólk við að hámarka sína frammistöðu.

„Þessi viðbót við þjálfarateymið er liður í þeirri framþróun sem á sér stað innan félagsins þar sem áhersla er lögð á faglega þjálfun í takt við þá þróun sem á sér stað á líkamlega þættinum í knattspyrnuheiminum í dag," segir í yfirlýsingu frá Víkingi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.