Fotbolti.net
28.11.26 - 11:43
Brynjar Ingi Erluson

42 ára gamall Thiago Silva framlengir í Brasilíu

42 ára gamall Thiago Silva framlengir í Brasilíu
Canon

Mynd: Fluminense

Brasilíski miðvörðurinn Thiago Silva er ekki á þeim buxunum að leggja skóna á hilluna, en hann hefur framlengt samning sinn við Fluminense í Brasilíu um eitt ár.
Silva hefur átt glæsilegan feril með stórliðum á borð við AC Milan, Chelsea og Paris Saint-Germain.

Hann sneri aftur til Brasilíu síðasta sumar og hefur leikið sextán leiki með Fluminense á þessu tímabili.

Aldurinn virðist hins vegar ekkert vera farinn að bíta á Silva, en Fluminense hefur nú tilkynnt að hann hafi framlengt samning sinn um eitt ár. Hann verður því orðinn 43 ára gamall þegar nýi samningurinn rennur út.

Stuðningsmenn Fluminense höfðu kallað eftir því að Silva fengi nýjan samning og hafa nú fengið ósk sína uppfyllta.

Ferill Silva virðist engan endi ætla að taka, en hann er í hópi fárra fótboltamanna sem hafa spilað yfir þúsund leiki á ferlinum.

Hann hóf ferilinn árið 2002 og nú, 24 árum síðar, er hann enn í fullu fjöri. Á þessum tíma hefur hann unnið 33 titla auk fjölda einstaklingsverðlauna.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.