27.11.26 - 21:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Þriðja tap Chelsea í röð

Morgan Gibbs-White

Mynd: EPA

Tvenna frá Emmanuel Emegha dugði ekki til

Mynd: EPA

Morgan Gibbs-White

Mynd: EPA
Nott. Forest 3 - 2 Chelsea
1-0 Igor Jesus ('5 )
2-0 Morgan Gibbs-White ('51 , víti)
2-1 Emmanuel Emegha ('54 )
3-1 Morgan Gibbs-White ('72 )
3-2 Emmanuel Emegha ('89 )
1-0 Igor Jesus ('5 )
2-0 Morgan Gibbs-White ('51 , víti)
2-1 Emmanuel Emegha ('54 )
3-1 Morgan Gibbs-White ('72 )
3-2 Emmanuel Emegha ('89 )
Nottingham Forest er þremur stigum frá fallsæti eftir sigur á Chelsea. Chelsea hefur tapað þremur leikjum í röð og fjórum af síðustu fimm. Igor Jesus kom Forest yfir snemma leiks með glæsilegu marki. Daniel Munoz átti fyrirgjöf og Jesus klippti boltann glæsilega í fjærhornið.
Chelsea komst hvorki lönd né strönd í fyrri hálfleik og náði ekki að ógna Matz Sels í marki Forest.
Forest fékk vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik þegar Wesley Fofana braut á Liam Delap. Morgan Gibbs-White steig á punktinn og tvöfaldaði forystu Forest.
Stuttu síðar barst boltinn til Emmanuel Emegha eftir skot frá Pedro Neto sem fór af varnarmanni og Emegha minnkaði muninn fyrir Chelsea.
Chelsea vildi fá vítaspyrnu þegar boltinn fór í höndina á Jair Cunha en hann var með höndina niður með síðum og því ekkert dæmt.
Gibbs-White bætti þriðja marki Forest við þegar hann vippaði yfir Emiliano Martinez eftir laglega sendingu frá Xaver Schlager.
Chelsea menn voru ekki búnir að gefast upp og Emegha bætti örðu marki sínu við og öðru marki Chelsea undir lokin þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Pedro Neto. Romeo Lavia fékk upplagt tækifæri til að jafna metin í blálokin en átti slakan skalla beint á Sels.
Chelsea er í 8. sæti með 16 stig en Forest er í 14. sæti með 12 stig.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 11 | +10 | 28 |
| 2 | Brighton | 11 | +17 | 22 |
| 3 | Man City | 11 | +8 | 22 |
| 4 | Liverpool | 11 | +8 | 21 |
| 5 | Bournemouth | 11 | +4 | 18 |
| 6 | Brentford | 11 | +9 | 17 |
| 7 | Leeds | 11 | +5 | 17 |
| 8 | Chelsea | 12 | -1 | 16 |
| 9 | Everton | 11 | -2 | 16 |
| 10 | Tottenham | 11 | +1 | 15 |
| 11 | Hull City | 11 | +2 | 14 |
| 12 | Aston Villa | 11 | -3 | 14 |
| 13 | Newcastle | 11 | -3 | 13 |
| 14 | Nott. Forest | 12 | -5 | 12 |
| 15 | Coventry | 11 | -8 | 12 |
| 16 | Fulham | 11 | -2 | 11 |
| 17 | Ipswich Town | 11 | -7 | 11 |
| 18 | Sunderland | 11 | -9 | 9 |
| 19 | Man Utd | 11 | -9 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 11 | -15 | 7 |