Fotbolti.net
27.11.26 - 16:40
Enski boltinn

Vanræktasti hluti Man Utd að blómstra

Sir Jim Ratcliffe hér með Omar Berrada, framkvæmdastjóra Manchester United.

Sir Jim Ratcliffe hér með Omar Berrada, framkvæmdastjóra Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Á meðan karlalið Manchester United situr í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni, þá hefur kvennalið félagsins verið að gera góða hluti undir stjórn hinnar spænsku Evu Olid. Kvennalið United situr í fjróða sæti ensku deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir London City Lionesses í þriðja sæti.
Í síðasta þætti Enski boltinn hlaðvarpsins var rætt um að þetta væri nú athyglisvert þar sem þetta væri hluti félagsins sem hefði verið frekar vanræktur eftir að Sir Jim Ratcliffe og hans menn hefðu komið inn.

Fjárfest hefur verið talsvert í karlaliðinu frá því að Ratcliffe hefur komið inn og hefur hann og eins menn verið puttana í flestöllu tengdu því. Þeir hafa hins vegar lítið spáð í kvennaliðinu. Ratcliffe sagði meira að segja í viðtali fyrir nokkrum árum að karlaliðið væri aðalmálið þar sem það „hreyfði nálina fjárhagslega".

„Kvennalið United er að gera góða hluti og vinnur hvern leikinn á fætur öðrum," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í Enski boltinn hlaðvarpinu.

„Það er áhugaverður punktur inn í þessu að INEOS, Sir Jim Ratcliffe og félagar, hafa lítið annað gert en að vanrækja kvennaliðið og lítið skipt sér af því. Nú sjáum við hvað þeim gengur vel," bætti Guðmundur við og var því velt upp hvort að það væri ekki bara betra fyrir alla ef Ratcliffe, Omar Berrada og Jason Wilcox, æðstu menn í fótboltalegri starfsemi United myndu hætta að skipta sér af öllum málum tengdum félaginu.

Í umfjöllun BBC í ágúst síðastliðnum var meðal annars bent á að félagið hefði ítrekað verið gagnrýnt fyrir skort á fjárfestingu í kvennaliðinu. Casey Stoney, fyrrverandi þjálfari liðsins, hætti árið 2021 vegna vaxandi áhyggja af skorti á aðstöðu og fjármagni. Árið 2024 vakti einnig athygli þegar kvennaliðið þurfti að nýta færanlegar einingar sem búningsklefa og fundaraðstöðu á meðan framkvæmdir stóðu yfir á Carrington-æfingasvæðinu.

Þá hefur félagið misst fjölda lykilmanna úr leikmannahópnum á undanförnum árum, þar á meðal Alessiu Russo og Mary Earps án þess að fá einhvern pening fyrir þær. Brottför Marc Skinner síðasta sumar, eftir fimm ár í starfi, vakti enn frekari spurningar um metnað félagsins, jafnvel þó Eva Olid hafi komið sterk inn.

„Það pirrar mig ekkert meira en þegar myndavélin fer upp í stúku á þessa trúða þarna," sagði Sigurjón Árni Torfason, stuðningsmaður United, í þættinum.
Eva Olid tók við stjórnartaumunum hjá kvennaliði Man Utd í sumar.

Eva Olid tók við stjórnartaumunum hjá kvennaliði Man Utd í sumar.

Canon

Mynd: Manchester United

Alessia Russo er á meðal leikmanna sem hafa yfirgefið United á síðustu árum.

Alessia Russo er á meðal leikmanna sem hafa yfirgefið United á síðustu árum.

Canon

Mynd: EPA

Enski boltinn - Íslendingar í úrvalsdeildina og Manchester í Championship

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.