Fotbolti.net
28.11.26 - 10:38
Brynjar Ingi Erluson

Unnu tvo leiki í röð í fyrsta sinn á tímabilinu

Hólmbert lék í sigri Gwangju

Hólmbert lék í sigri Gwangju

Canon

Mynd: Gwangju FC

Hólmbert Aron Friðjónsson og félagar hans í Gwangju unnu 4-2 sigur á Pohang í næstsíðustu umferð suðurkóresku deildarinnar í morgun.
Þetta var annar sigur Gwangju í röð og í fyrsta sinn á tímabilinu sem liðinu tekst að vinna tvo leiki í röð.

Gwangju vann einnig síðasta leik sinn með sömu markatölu, en þar var Hólmbert á meðal markaskorara í endurkomu sinni.

Hann byrjaði á varamannabekknum gegn Pohang í dag, en kom inn á í síðari hálfleiknum.

Gwangju hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og situr á botni deildarinnar með 29 stig þegar aðeins ein umferð er eftir.

Liðið þarf því að fara í umspil um áframhaldandi sæti í deildinni, en áður en að því kemur mætir það Anyang í lokaumferðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.