27.11.26 - 21:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Danijel Djuric kveður KA - „Býðst til að axla þá ábyrgð"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danijel Dejan Djuric hefur staðfest í færslu á 'story' á Instagram að hann sé á förum frá KA. Fótbolti.net sagði frá því í dag að KA hafið boðið hann til annarra félaga.
Danijel var keyptur til KA frá króatíska félaginu Istra fyrir tímabilið en hann náði ekki að sýna sitt rétta andlit. Danijel, sem er 23 ára sóknarmaður, lagði upp fjögur mörk í 25 deildarleikjum í sumar, en hann byrjaði 15 þeirra.

Hann skrifaði undir samning við KA út árið 2028.
„KA-fólk. Nú er komið að því að ég kveðji og mig langar að segja takk kærlega fyrir mig. Þið eruð yndisleg og ég er virkilega þakklátur fyrir tímann sem við áttum saman," skrifar Danijel.
„Mér þykir ótrúlega leitt að við skyldum falla og ef eitthvað er, þá skal ég axla eins mikla ábyrgð á þessu falli og fólk vill leggja á mínar herðar. Ég býðst til að axla þá ábyrgð."