Fotbolti.net
28.11.26 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Skrifaði ritgerð um sóknarbakverði

Bjarni náði glæstum árangri sem þjálfari.

Bjarni náði glæstum árangri sem þjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Jóhannsson skýrði frá því fyrr í haust að nú væri þjálfaraferli hans endanlega lokið. Bjarni þjálfaði meistaraflokkslið í fótbolta nær samfleytt frá 1983 til 2025 og er leikjahæsti þjálfari Íslandssögunnar í deildakeppni hér á landi.

Í öðrum hluta í ítarlegu viðtali við Víði Sigurðsson segir Bjarni frá árunum 1982 til 1986 á Ísafirði, Akureyri, Neskaupstað og Noregi.

Hægt er að nálgast annan part viðtalsins neðst í fréttinni en hann er fyrir áskrifendur Fótbolta.net. Fyrsta vikan í áskrift er frí.

Þú getur keypt áskrift með því að smella hérna.
Í öðrum hluta viðtalsins segir Bjarni meðal annars frá því þegar hann stundaði nám við íþróttaháskólanum í Osló, Norges idrettshögskole (NIH). Bjarni kveðst alltaf hafa verið mikill áhugamaður um sóknarbakverði, enda hafi hann sjálfur spilað lengi sem ágætlega sókndjarfur bakvörður, og það nýttist honum í náminu.

„Ég skrifaði ritgerð í Noregi um sögu sóknarbakvarða. Það var svo gaman! Einu heimildirnar sem maður hafði voru skýrslur, og svo t.d. heimsmeistaramótið 1966, en það var samt mikið efni til í Noregi. Ég man að þegar ég var að grúska í þessu komst ég að því að sóknarbakverðir hefðu verið fundnir upp árið 1958 þegar Brasilíumenn urðu heimsmeistarar í Svíþjóð. Þeir sögðu að Brassarnir hefðu valið 20 bestu fótboltamennina í landinu fyrir keppnina, og það voru nánast bara sóknarmenn. Einhvers staðar urðu þeir að koma þeim fyrir í liðinu og tveir þeirra þurftu að vera bakverðir!" segir Bjarni.

„Svo tóku Englendingarnir þetta upp og tefldu fram hörkugóðum sóknarbakvörðum árið 1966 þegar þeir urðu heimsmeistarar, þeim George Cohen og Ray Wilson. Terry Cooper, sem var síðan í HM-liði Englands 1970, var dæmi um kantmann sem var gerður að vinstri bakverði og var því sókndjarfur.“

Hér fyrir neðan er hægt að lesa fréttina í heild sinni.

Bjarni Jóh 2: Fór til Noregs og lærði hjá Drillo
TENGT EFNI

Bjarni Jóh 2: Fór til Noregs og lærði hjá Drillo

Bjarni á sínum yngri árum.

Bjarni á sínum yngri árum.

Canon

Mynd: Jóhann G. Kristinsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.