28.11.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þjálfari kvennaliðs Arsenal missir starfið - Vann Meistaradeildina í fyrra

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Renee Slegers, þjálfari kvennaliðs Arsenal, hefur verið látin taka pokann sinn eftir slæmt gengi á tímabilinu.
Liðið vann Meistaradeildina í fyrra undir hennar stjórn en hún tók við af Jonas Eidevall sem bráðabirgðarþjálfari. Liðið tapaði í baráttunni við Man City um Englandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð.

Hún fékk nýjan samning í janúar til þriggja ára. Liðið hefur hins vegar ekki unnið í fimm leikjum í röð í fyrsta sinn í sögu félagsins og hún var látin taka pokann sinn.
Þá er liðið án sigurs á heimavelli, liðið hefur gert sex jafntefli í röð. Arsenal situr í 6. sæti, 12 stigum á eftir toppliði Chelsea og átta stigum á eftir London City Lionesses sem situr í 3. sæti og er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni.