Fotbolti.net
27.11.26 - 16:45
Enski boltinn

„Er þetta sá snillingur sem talað er um?"

Xabi Alonso, stjóri Chelsea.

Xabi Alonso, stjóri Chelsea.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea sækir Nottingham Forest heim í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, en Lundúnafélagið hefur verið að hiksta mikið að undanförnu.

Margar spurningar eru farnar að vakna í kringum Xabi Alonso, sem tók við Chelsea í sumar.
„Þetta er svo glatað," sagði Haraldur Örn Haraldsson, stuðningsmaður Chelsea, og lýsti liðinu sem „leiðtogalausum her". Hann furðar sig á uppspili Chelsea sem snýst mikið um langa bolta.

„Þetta er búið að vera lélegt á þessu tímabili. Ég hef gefið mikinn afslátt því Xabi Alonso er á sínu fyrsta tímabili. En þetta var svo slakt á móti Leeds."

Eru áhyggjur farnar að vakna?

„Já, því maður sér ekki hver vegferðin er hjá Alonso," sagði Haraldur.

„Pressan hjá Chelsea er þannig að þeir bíða þangað til þú kemur upp að miðju til að setja einhverja pressu. Það er mjög erfitt að sjá leikstílinn sem Alonso vill innleiða hjá þessu liði. Chelsea spilar einu sinni í viku og hefur nægan tíma á æfingasvæðinu."

„Núna hefur Chelsea farið í endalaust af þjálfararáðningum á nokkrum árum. Þær hafa gengið misvel. Mig langar að gefa Alonso eins mikla þolinmæði og hægt er til að byggja eitthvað upp. Sérstaklega því hann fékk auka völd innan félagsins til að taka fleiri ákvarðanir í kaupum og sölum. En þetta gengur ekki til lengri tíma," sagði Haraldur.

„Xabi Alonso vann náttúrulega Bundesliguna með Bayer Leverkusen á sínum tíma og var rekinn frá Real Madrid kannski ósanngjarnt. En er þetta sá snillingur sem talað er um?" spurði Sigurjón Árni Torfason í þættinum.

„Það er spurningin. Þetta er náttúrulega gríðarlega erfitt starf. Ég hugsa að þetta sé næst erfiðasta starfið á eftir Manchester United," sagði Haraldur.

Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan.
Chelsea fagnar marki.

Chelsea fagnar marki.

Canon

Mynd: EPA

Enski boltinn - Íslendingar í úrvalsdeildina og Manchester í Championship

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.